búvörulög og búnaðarlög.
Herra forseti. Já, Nýja-Sjáland. Varðandi styrkina þá styð ég græna styrki. Ég ætla ekki að skylda landeigendur á Íslandi, hvort sem þeir eru erlendir eða innlendir, til að vera í landbúnaði. Hvers konar forsjárhyggja kemur úr þessum stól ef menn ætla að tala þannig? Ég get engu að síður alveg sagt að ég vil styrkja bændur beint nýti þeir landið á tiltekinn hátt. Ég ætla ekki að gefa út blankó tékka þannig að ef menn eiga land á Íslandi fái þeir einhverja ávísun frá ríkinu úti um allt land. Mér er alveg sama í því samhengi hvort aðilinn heitir erlendu nafni eða íslensku. Ég held að við getum alveg sniðið kerfið til og við höfum svolítið gert það í þá átt að styrkirnir renni á beinan og grænan hátt og bjagi ekki markaðinn. Það er það sem ég er að draga fram.
Við skulum vera sammála um að styrkja þennan blessaða landbúnað en gerum það ekki þannig að markaðslögmálin séu beygð og brotin, vegna þess að þeim slag töpum við alltaf. Það er kostnaðarsöm leið til að ná markmiðinu sem lýtur að því að hlúa að íslenskri bændastétt, sem ég held að sé (Forseti hringir.) mjög mikilvægt því að íslenskur landbúnaður er sérstakar á margan máta.