149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[20:09]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann í ljósi þess að hann nefndi Nýja-Sjáland: Eru engar hömlur á innflutningi á landbúnaðarafurðum til Nýja-Sjálands? Ef þær eru til staðar, hverjar eru þær þá? Ég kannast nefnilega líka aðeins við Nýja-Sjáland.

Mig langar líka að spyrja hv. þingmann, vegna þess að hann svaraði ekki spurningu minni varðandi styrkina til landeigenda: Er það sú sýn eða þeir grænu styrkir sem hv. þingmaður sér fyrir sér, að við eigum að veita styrki til þeirra sem eiga landið til þess að fá styrki til að græða land og svo leigja þeir okkur hinum, sem viljum kannski eiga nokkra rollur eða kýr eða eitthvað slíkt, land undir búskapinn? Er það þannig sem hv. þingmaður sér þetta?

Ég spyr enn og aftur, vegna þess að hv. þingmaður talar um samkeppnismál: Hvernig stendur á því að hv. þingmaður og fleiri sem eru fylgjandi frumvarpinu hér tala eins og samkeppnisyfirvöld, t.d. innan Evrópusambandsins, nái yfir alla landbúnarframleiðslu? Er það þannig? Eru engar undanþágur frá samkeppnisreglum Evrópusambandsins fyrir landbúnaðarafurðir?