búvörulög og búnaðarlög.
Hæstv. forseti. Ég veit ekki annað en að bændur hafi verið algerlega tilbúnir að taka þátt í uppgræðslu landsins og framþróun í þeim málum. Við erum þjóð sem byggir afkomu sína á nýtingu auðlinda. Við erum vörslumenn landsins. Bændur hafa séð um það og uppbyggingu þess og síðan komið að landgræðslu. Við viljum bera okkur saman við auðugar þjóðir, þjóðir sem standa hvað fremst í þessum efnum. Við berum okkur saman við Noreg, Sviss og Svíþjóð. Þetta eru allt þjóðir sem verja sinn landbúnað. Hvar værum við stödd ef við gerðum það ekki? Eigum við bara að vera eyland úti í miðju hafi án allra tolla? Á að opna allt?
Hv. þingmaður talar um fjármuni sem settir eru í landbúnaðinn. Í minni sveit þykir það bara skítur á priki miðað við allt sem við fáum á móti.