149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[20:56]
Horfa

Flm. (Þorsteinn Víglundsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni áhugaverða ræðu. Það er margt sem leitar á hugann við að hlýða á hv. þingmann en mig langar eiginlega að byrja þar sem hann lauk máli sínu.

Varðandi áhyggjur af lífeyrissjóðum sem eiganda verslunar í landinu velti ég fyrir mér hvort við getum talað um skylda aðila. Ef við berum þetta tvennt saman er hér talað um að leggja af verðlagsnefnd, en hagsmunaaðilar skipa meiri hluta nefndarinnar um ákvörðun á verði til framleiðenda eða bænda sjálfra en ekki síður til neytenda. Er hægt að leggja það að jöfnu við lífeyrissjóðina, að þeir séu skyldir aðilar, telur hv. þingmaður virkilega að lífeyrissjóðir landsins standi í einhvers konar verðsamráði á smásölumarkaði? Lífeyrissjóðirnir eru að hálfu skipaðir í stjórnum sínum fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar, fulltrúum neytenda í landinu, sömu fulltrúum og neituðu að halda áfram að skipa fulltrúa í verðlagsnefnd búvöru af því að þeir töldu það fyrirkomulag algerlega úr sér gengið, þeir hættu að tilnefna fulltrúa sína í þá nefnd fyrir allnokkrum árum í hreinu mótmælaskyni við þetta verðlagsfyrirkomulag, þeir töldu það andstætt hagsmunum neytenda.

Telur hv. þingmaður í alvörunni að lífeyrissjóðirnir sem eigendur þessara fyrirtækja, einungis að hluta svo því sé til haga haldið, standi í einhvers konar verðsamráði á smásölumarkaði? Að fulltrúar launþega í landinu, verkalýðshreyfingarinnar, myndu í alvörunni líða slíka háttsemi á markaði? Ég trúi því ekki að hv. þingmaður trúi því virkilega.