149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[21:20]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að beina spurningum að hv. þingmanni. Það kom fram í ræðu hans að bændur væru bara eins og hverjir aðrir atvinnurekendur og vísaði í húsgagnaframleiðslu sem dæmi. En nú eru bændur hornsteinar hvers landsvæðis, oftar en ekki vörslumenn landsins og menningarlegra verðmæta og hafa bundist samtökum til að semja um afurðir sínar.

Hvað sér hv. þingmaður athugavert við sameiginlega samningagerð bænda við ríkið um sín mál? Er eðlilegt að brjóta þetta upp með þeim hætti að brjóta félagslegt kerfi þeirra upp? Ætti það sama við um verkalýðshreyfinguna t.d. og hvaða afleiðingar telur hv. þingmaður að það hefði fyrir byggðir landsins og samþjöppun í landbúnaði í kjölfarið þar sem (Forseti hringir.) verið er að safna mjólk og bændur fá sama verð fyrir mjólk og neytendur sama verð líka?