búvörulög og búnaðarlög.
Herra forseti. Ég get alveg tekið undir það sem flutningsmenn þessa frumvarps segja í greinargerð, að ég hef alltaf litið á íslenska bændur sem sjálfstæða atvinnurekendur. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við höldum því til haga. Ég vil hins vegar inna hv. þingmann eftir því hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að bændur, sem eru kannski ekki allir í alfaraleið, en eru mjólkurframleiðendur, muni ekki geta komið vöru sinni á markað með sama hætti og nú er. Það hlýtur að fylgja í þessu frumvarpi að afnema skyldu afurðastöðva til að sækja mjólkina eins og gert er núna og er ein ástæða þess að við höfum þetta fyrirkomulag.
Ég spyr hv. þingmann: Hvernig (Forseti hringir.) ætlið þið að tryggja að afskekktir bændur geti komið vöru sinni á markað?