búvörulög og búnaðarlög.
Herra forseti. Ég þakka góða spurningu. Ég tek heils hugar undir að orðið hefur talsverð framþróun í landbúnaði, skárra væri það nú, nýsköpun og nýjungar og allt þar fram eftir götunum. Það sem ég átti meira við þegar ég talaði um byggðastefnuna og að hún væri misheppnuð að því leyti var, og ég held að hv. þingmaður hljóti að vera sammála mér um það, að þrátt fyrir þá stefnu fækkar bændum og jarðir fara í eyði, búskapur leggst af. Sú aðferð hefur því ekki dugað til að halda í horfinu í hópi bænda sem reka bú víða um land. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt.
Ég er alveg sammála því að við eigum (Forseti hringir.) að standa vissan vörð um landbúnaðinn en það felst ekki (Forseti hringir.) í þessum aðferðum. Mér leiðist satt að segja pínulítið þegar menn tala um að fylla landið af óværu ef menn slysast til þess að borða eitthvað frá útlöndum.