149. löggjafarþing — 25. fundur,  25. okt. 2018.

búvörulög og búnaðarlög.

17. mál
[21:35]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður virðist misskilja hvernig staðið er að söfnun mjólkur. Það er sérstakt fyrirtæki sem sér um þá söfnun og fer í um 80.000 heimsóknir á hverju ári til að sækja mjólk. Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að það kemur hvergi fram í frumvarpinu, hvernig það fyrirtæki á að mæta þeim kostnaði. Í frumvarpinu er einfaldlega gert ráð fyrir að fyrirtækið safni mjólk og svo kemur ekkert meira fram. Hvernig á fyrirtækið að reka sig ef það má ekki eiga samstarf við önnur fyrirtæki?

Mig langar líka að spyrja hv. þingmann: Hver er munurinn á því að Bændasamtök Íslands semji um starfskjör sín við ríkið umfram aðra aðila sem semja um starfskjör sín við ríkið? Bændasamtök Íslands voru stofnuð eftir sameiningu Búnaðarfélags Íslands og stéttarsamtaka bænda. Það er rangt ef hv. þingmaður heldur að bændur séu skyldugir til að vera aðilar að Bændasamtökunum. Það var þannig en er ekki lengur.

Svo langar mig að spyrja hvort hv. þingmaður leggi það virkilega að jöfnu (Forseti hringir.) að framleiða stóla og að framleiða matvæli á Íslandi. Ætlar hann að éta stóla og borð ef landið lokast?