búvörulög og búnaðarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég vil byrja á að taka fram að ég á enga sérstaka vini í kaupmannastétt þannig að ég tala alls ekki fyrir hönd þeirra eða í umboði þeirra, eins og mér fannst hv. þingmaður gefa í skyn.
Við hverja eiga bændur að semja? Hv. þingmaður notaði orðin „um starfskjör sín“. Ég hafna því að tala um starfskjör. Ég er alltaf að reyna að segja að bændur framleiða vöru. Er það ekki? Erum við sammála um það? (GBS: Þetta er útúrsnúningur. Við hvern eiga þeir að semja?) — Þetta er ekki útúrsnúningur. Þeir selja vöru sína og þeir semja á sama grundvelli og hverjir aðrir sem afsetja vöru sína og þjónustu. Þeir geta gert það í gegnum samtök ef þeir vilja. Þeir geta stofnað samlög. En það er ekki það sama að við höfum ein samtök þeirra sem hafa sérstakt hlutverk að lögum og semja við ríkið um verð á vörunni sem þeir framleiða.