almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það sem við horfum aðallega til er ekki spurningin um að seinka töku lífeyris, eins og hv. þingmaður talar um. Það er faktískt ekki hægt að gera það endalaust en auðvitað gera eldri borgarar það í dag ef þeir mögulega geta. Það sem við erum að tala um er sú staðreynd að við verðum eldri og að við erum heilsuhraustari miklum mun lengur, þannig að fólk sem er 75 ára, 77 ára, áttrætt, vill enn þá fá að vinna. Það getur ekki endalaust frestað töku lífeyris.
Ég get ekki séð á nokkurn hátt að farið yrði að misnota kerfið og að fólk væri að fara inn á fullan lífeyri vegna þess að þeir sem eiga og eru búnir að safna sér inn stórum lífeyri, eins og við alþingismenn og fleiri verðum búin að gera, eiga einfaldlega ekki rétt á að fá eina einustu krónu úr almannatryggingakerfinu. Það er ekki flóknara en það.
Ég segi: Það þarf ekki að gera einfalda hluti flókna. Mér finnst oft og tíðum nákvæmlega það valda því að ekkert yfir höfuð er gert.