149. löggjafarþing — 26. fundur,  5. nóv. 2018.

varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá Guðmundi Andra Thorssyni og Silju Dögg Gunnarsdóttur um að þau geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Á föstudaginn, 2. nóvember, tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Margrét Tryggvadóttir.

Í dag, mánudaginn 5. nóvember, tekur sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, Ásgerður Kristín Gylfadóttir.

Þær hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.