149. löggjafarþing — 26. fundur,  5. nóv. 2018.

opið hús á fullveldisafmæli.

[15:02]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Þann 1. desember nk. verður opið hús á Alþingi, en þann dag eru 100 ár liðin frá því að Ísland öðlaðist fullveldi. Forseti Alþingis og þingmenn ásamt starfsmönnum Alþingis munu taka á móti gestum og veita leiðsögn um húsið frá kl. 13.30 til kl. 18.