149. löggjafarþing — 26. fundur,  5. nóv. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:03]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum:

Frá dómsmálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 214, um byrlun ólyfjanar, frá Helga Hrafni Gunnarssyni.

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 278, um tjónabifreiðar, frá Birgi Þórarinssyni.

Frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 212, um fulltrúa af landsbyggðinni í stjórnum, nefndum og ráðum, frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.

Loks frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 94, um ráðgjöf og störf við tímabundin eða afmörkuð verkefni, frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, á þskj. 111, um viðveru herliðs á Keflavíkurflugvelli, frá Andrési Inga Jónssyni, og á þskj. 150, um viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi, frá Karli Gauta Hjaltasyni.