149. löggjafarþing — 26. fundur,  5. nóv. 2018.

öryggis- og varnarmál.

[16:06]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Herra forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þessa mikilvægu umræðu um öryggis- og varnarmál og þakka ráðherra efnismikla og hnitmiðaða ræðu.

Ég er ánægður með að fá hér tækifæri sem formaður þingflokks Flokks fólksins til að undirstrika skýra stefnu flokksins í utanríkismálum. Í ályktun sem samþykkt var á landsþingi flokksins í september sl. segir m.a., með leyfi forseta:

„Flokkur fólksins styður helstu hornsteina íslenskrar utanríkisstefnu sem eru aðild að Sameinuðu þjóðunum, virk þátttaka í norrænu samstarfi og aðild Íslands að NATO.“

Ég vil leggja áherslu á að með aðildinni að NATO getum við áfram stuðlað að öryggi í Evrópu líkt og bandalaginu hefur tekist í tæp 70 ár. Í þessu sambandi fagna ég nýlegri æfingu NATO á norðurslóðum en áratugir eru liðnir frá því að slík æfing fór síðast fram

Þá er rétt að athuga að NATO, og einungis NATO, tryggir ómetanlega þátttöku Bandaríkjanna í öryggismálum Evrópu. Eining, árvekni og afl NATO tryggir öryggi í Evrópu eins og nauðsynlegt er, m.a. í kjölfar íhlutunar Rússa í Úkraínu og versnandi samskipta á alþjóðavísu sem eru áhyggjuefni þótt við Íslendingar höfum margvíslega góða reynslu af gagnkvæmum samskiptum við Rússland og forvera þess.

Einkum og sér í lagi ætti okkur í þessu samhengi að vera annt um öryggi vina okkar og bandamanna í Eystrasaltsríkjunum sem reiða sig á NATO og Bandaríkin til að tryggja öryggi sitt við óvissar aðstæður.