lítil sláturhús.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar þrjár sem snúa allar að reglugerðinni og aðstæðum smærri matvælafyrirtækja að markaði. Markmið þeirrar reglugerðar sem þarna um ræðir er að auðvelda sláturhúsum, fiskmörkuðum og litlu matvælafyrirtækjum að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlitsreglugerðum, þó þannig að markmiðum Evrópureglugerðar um þessi efni sé náð varðandi matvælaöryggi, neytendavernd, ábyrgð fyrirtækja á framleiðslu sinni, rekjanleika o.s.frv. Sú reglugerð sem hér er vitnað til var sett í október 2016.
Við leituðum upplýsinga frá Matvælastofnun. Þá kom í ljós að ekkert sláturhús hefur enn fengið starfsleyfi á grundvelli reglugerðarinnar. Hins vegar barst umsókn í september síðastliðnum og er hún í vinnslu hjá Matvælastofnun. Jafnframt er unnið að því að aðlaga eitt sláturhús sem starfar samkvæmt eldra leyfi að ákvæðum umræddrar reglugerðar. Matvælastofnun hefur verið að kynna reglugerðina á fundum og námskeiðum. Að því leyti má telja að reglugerðin hafi skilað þeim árangri að öllum þessum aðilum er gert auðveldara að uppfylla kröfur í hollustuhátta- og eftirlitsreglugerðum. Í því felast vissulega ákveðin sóknarfæri sem ríma ágætlega við áherslur ríkisstjórnarinnar sem koma fram í stjórnarsáttmálanum um áherslu á nýsköpun og vöruþróun í landbúnaði til að stuðla að byggðafestu, auka verðmætasköpun og nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi.
Í öðru lagi var spurt um fjölda þeirra aðila sem falla undir reglugerðina. Því er til að svara að lítil matvælafyrirtæki með kjöt og mjólkurafurðir sem falla undir reglugerðina eru alls 15, samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun. Það er einungis eitt starfandi sláturhús sem fellur undir reglugerðina, eins og staðan er í dag. Það sláturhús hafði fengið starfsleyfi áður en reglugerðin tók gildi en unnið er að því að aðlaga starfsemina að núverandi regluverki. Fiskmarkaðirnir aftur á móti sem falla undir reglugerðina eru 28, þannig að allt í allt erum við með 43 eða 44 fyrirtæki sem falla í þennan litla flokk.
Loks er spurt hvort ég telji að einfalda megi regluverkið enn frekar fyrir lítil sláturhús. Nú þegar reynslan er komin á beitingu framangreindrar reglugerðar vil ég fyrst tiltaka að reynslan af henni er stutt og greinilega ekki mjög mikil eftirspurn eftir henni. Það getur vel verið að hún sé að myndast. Mér finnst umræðan um þessi efni vissulega fara vaxandi. Ég styð einföldun regluverks og er talsmaður þess. En jafnframt verðum við að leggja áherslu á að reglum sé fylgt og í samræmi við þær skuldbindingar sem við höfum gert. Matvælastofnun og ráðuneytið fylgjast með framkvæmd þessara mála í nágrannalöndum og þróun Evrópulöggjafar á þessu sviði, m.a. með hliðsjón af því hvaða heimildir eru fyrir hendi til að auka sveigjanleika í störfum lítilla sláturhúsa. Verið er að skoða það sérstaklega og fylgjast með því.
Við erum með til skoðunar í ráðuneytinu tillögur Matís varðandi svokölluð örsláturhús. Þeim er ætlað að stuðla að aukinni nýsköpun í sveitum landsins og taka mið af fyrirkomulagi sem þekkist á ákveðnum svæðum í Þýskalandi. Af því tilefni, þ.e. vegna tillögugerðar Matís, óskaði ég eftir því að Matvælastofnun fengi upplýsingar frá Norðurlöndunum um þessi efni. Þar varð niðurstaðan sú að fyrir það fyrsta sé ekki svigrúm í löggjöf okkar til að veita undanþágur frá slátrun í sláturhúsi sem hefur leyfi ef setja á kjöt á markað.
Í öðru lagi voru svörin frá Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku samhljóða svörum Matvælastofnunar hér. Á vettvangi Evrópusambandsins eiga sér nú stað umræður um lítil sláturhús, hvernig skilgreina megi starfsemi þeirra betur, en um leið huga að matvælaöryggi og nauðsynlegu opinberu eftirliti með framleiðslu sem þar gæti átt sér stað. Við fylgjumst með þessari umræðu bæði í ráðuneytinu og í Matvælastofnun. Ef það leiðir til þess að unnt verði að auðvelda litlum sláturhúsum verk sín skoðum við það að sjálfsögðu með mjög opnum huga, en auðvitað undir þeim mælistikum sem snúa að matvælaöryggi og neytendavernd.