störf þingsins.
Nú eru í gangi þingkosningar í Bandaríkjunum og við forsetakosningarnar fyrir tveimur árum voru margir hissa á því að Trump hefði getað unnið. Þau módel sem menn settu upp þá til að skilja fyrir fram virkuðu ekki. Menn bjuggust við að hann myndi tapa og svo vann hann.
Meðal þess sem ég hef verið að skoða í kjölfarið eru mismunandi uppsett módel. Þegar ég var í viðskiptafræðinni á sínum tíma, í mannauðsstjórnun, las ég um módel sem er kallað „Myers-Briggs Type Indicator“, persónutýpuprógramm, sem mæðgurnar Myers & Briggs tóku saman, og hefur reynst mér ofboðslega vel í að greina það samstarfsfólk sem ég er með, hvaða forsendur það hefur, hvaða gildi það notar o.s.frv. Svo er módelið „OCEAN“ eins og það er kallað, sem er skammstöfun yfir fimm persónueigindi. Það er módelið sem m.a. Cambridge Analytica notaði til að kasta yfir kjósendur, reyna að greina þá og persónugreina eða persónumiða skilaboð inn á einstaklinga út frá þeim þáttum.
Nýtt módel sem ég var að rekast og vil benda öllum á að skoða skýrir kannski og getur opnað samtal á milli þeirra sem í Bandaríkjunum eru meira „liberal“ og myndu kjósa demókrata og þeirra sem eru meira „conservative“ eða íhald og kjósa frekar repúblikana. Það módel er kallað „Moral Foundations Theory“, með leyfi forseta, þ.e. grundvallarsiðferðiskenning. Jonathan Haidt setur kenninguna fram og þá er búið að gera tilraunir og kasta þessu yfir mörg samfélög.
Eitt af því sem kemur fram þar er að það sem er ofarlega — þetta er forgangsröðun, hvernig á að forgangsraða þessum gildum — er að þeir sem eru „liberal“ eða frjálslyndari forgangsraða „care“ og „fairness“ eða umhyggju og „fairness“ ofar en hinum gildunum en gleyma sér í gildum íhaldsmanna. Það sem er neðar en það sem íhaldsmenn setja ofar — sem er hollusta við sinn innhóp og við yfirvald og það að beygja sig undir yfirvald og hafa „hírarkí“ eða meiri lagskiptingu (Forseti hringir.) í valdi og svo einhvers konar „sanctity“ eða „purity“, einhver heilagleiki eða einhvers konar hreinleiki — Þetta sjáum við í öllum samfélögum. Ég bendi fólki á þetta módel til að skoða af því að það útskýrir mikið til hvers vegna við sem erum frjálslynd sjáum kannski ekki að það séu aðrir hlutir í forgangi hjá íhaldsmönnum. Þetta getur opnað samtal og skilning.