póstþjónusta.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að við getum öll verið sammála um að póstþjónustan hefur farið versnandi. Það er slæmt mál og við þurfum að bæta það eins og kostur er. Ég nefndi það í ræðu minni að það væri mjög gagnlegt í þessari umræðu að fá skoðanir Norðmanna á þessari tilskipun. Nú er það svo að Norðmenn neituðu lengi vel að innleiða tilskipunina, vegna þess m.a. að þeir töldu að aðstæður í Noregi væru með þeim hætti að hún ætti ekki við. Nú síðan urðu ríkisstjórnarskipti í Noregi og málið varð kosningamál, eins og við þekkjum. Niðurstaðan varð síðan sú að tilskipunin var samþykkt.
Kjarni málsins er sá að þetta er tilskipun sem við þurfum að innleiða í gegnum Evrópska efnahagssvæðið og hugmyndin kemur frá Evrópusambandinu. Það er alveg ljóst. Það að afnema það að ríkið reki póstþjónustu kemur frá Evrópusambandinu. Þá er auðveldlega hægt að álykta sem svo, og við sjáum það, að póstþjónustan var betri þegar hún var á höndum ríkisins. Það er bara staðreynd. Póstþjónustan var þá í bæjarfélögum. Þar voru pósthús. Það hefur stöðugt dregið úr þessari þjónustu og eins og ég nefndi hér áðan er eitt pósthús farið að þjóna nokkrum bæjarfélögum. Þetta liggur alveg ljóst fyrir og tilskipunin kemur frá Evrópusambandinu og þá hlýtur að gefa augaleið að þetta hefur orðið til þess, sem við sjáum, að þjónustan hefur versnað.