vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
Virðulegi forseti. Mikilvægir almannahagsmunir, vissulega. Það er mjög góð ástæða fyrir því að við höfum vísindasiðanefnd, eða „internal review board“, eins og tíðkast annars staðar. En þær rannsóknir sem koma inn á borð vísindasiðanefndar fara langt út fyrir þær ástæður sem voru fyrir því að vísindasiðanefnd var búin til. Við skulum hafa það í huga að þetta eru ekki bara sérstaklega umfangsmiklar rannsóknir heldur allar rannsóknir innan þessa sviðs, líka litlar rannsóknir, líka rannsóknir sem hafa ekki fengið styrk en gætu fengið styrk ef samþykki vísindasiðanefndar fæst, sem hafa þá ekki styrk til að borga fyrir umsóknina til vísindasiðanefndar.
Það er ákveðinn hvati í þessu til að breyta ekki aðferðinni, ef rannsakandi kemst að því að það gæti verið betra að gera rannsóknina einhvern veginn öðruvísi þarf hann að borga fyrir það. Það er ekki hvati til þess að gera góða rannsókn.
Það er áhugavert að sjá að í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að gjaldið eigi að standa undir raunkostnaði við þjónustuna og það er gert ráð fyrir 9–11 millj. kr. gjaldtöku af þessu sem dettur síðan niður í 3–6 millj. kr. Hvort þarf til að standa undir raunkostnaði þjónustunnar? Ég veit ekki hvort.
Fullt af öðrum atriðum, ég ætla að ná alla vega einu í viðbót. Hvað eru nemendarannsóknir? Það er skilgreining sem vantar hérna, því að í velflestum rannsóknum sem eru stundaðar innan háskólans koma nemendur mjög mikið að vinnunni. Það væri mjög áhugavert að heyra hvernig nákvæmlega nemendarannsókn er öðruvísi en rannsókn sem er unnin innan háskólans.