149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

innleiðing þriðja orkupakka ESB.

[10:34]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og skal reyna að svara henni skýrt. Mér fannst svör hæstv. utanríkisráðherra ekki jafn óskýr og hv. þingmanni. Sú rosalega óvissa sem hv. þingmaður reynir að koma að felst eingöngu í því að verið er að skoða málið nánar en gert hefur verið, m.a. vegna þess að ég hef hlustað á þær áhyggjur sem menn hafa varpað fram og alls konar spurningar sem við höfum reynt að svara. Sum svör vilja menn bara ekki heyra og halda áfram að halda einhverju fram sem er ekki rétt. Ég er ekki að segja að hv. þingmaður sé að gera það en ýmsir í umræðunni gera það. Það er alveg sama hvaða upplýsingar menn koma með, talað er niður til þeirra sem mest vita um málið. Mér finnst ekki góður bragur á því, en allt í góðu.

Við höfum lagt töluverða vinnu í að reyna að koma á framfæri upplýsingum og staðreyndum um málið. Af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega formann Sambands garðyrkjubænda segi ég ekki annað en að það er mikill ábyrgðarhluti að koma fram og segja að heil atvinnugrein geti orðið úti ef menn innleiða hér ákveðnar tilskipanir og reglugerðir frá Evrópusambandinu. Þetta mál hefur verið í kerfinu frá því löngu fyrir mína tíð. Ég var rétt að byrja laganám þegar þetta hófst. Ég hef komið til þingsins með allar þær upplýsingar sem hafa verið innan kerfisins. Mér finnst satt að segja allt í lagi að benda á að þeir sem nú hafa hæst í þingsal, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson, eiga töluvert í því hversu langt málið er komið og aldrei óskaði neinn eftir undanþágum frá þessum tveimur reglugerðum. Óskað var eftir undanþágum frá öðru, reglugerð varðandi gas af því að hér er ekki gas.

Ég vil líka að fram komi að það er vandamál við málið að ekki eru margir sem berjast fyrir því. Ástæðan fyrir því að erfitt er að berjast (Forseti hringir.) fyrir því er að það skiptir ekki svo miklu máli. Á endanum snýst þetta um EES-samninginn. Ef menn ætla að fara í ferðalag og segja (Forseti hringir.) að þeir ætli ekki að innleiða þetta hefur það áhrif á EES-samninginn. Þá þurfa menn að vera tilbúnir í þann leiðangur og ég er ekki að segja að ég sé ekki tilbúin í hann.