innleiðing þriðja orkupakka ESB.
Virðulegur forseti. Akkúrat þegar ég hélt að ráðherrann væri að koma með hið endanlega svar var snúið við og bent á að hugsanlega væri hún til í að fara í baráttu gegn EES-samningnum svoleiðis að enn er ég engu nær.
Hæstv. ráðherra lýsir því að ráðuneytið sé mikið búið að reyna að útskýra málin fyrir fólki, en þær útskýringar virðast fyrst og fremst snúa að því að reyna að útskýra hvers vegna þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af, með öðrum orðum útskýra hvers vegna eigi bara að innleiða þetta.
Hæstv. ráðherra nefndi líka að málið væri búið að vera lengi í kerfinu og þess vegna væri hægt að kenna öllum sem hafa starfað í íslenskri stjórnsýslu væntanlega um það að ráðherrann treysti sér ekki til að kveða skýrt upp úr um málið núna. En þeim mun lengur sem þetta er búið að vera í kerfinu, þeim mun meiri upplýsingar hljóta menn að hafa og tilefni, ástæðu og getu til að kveða upp úr um það hvernig eigi að nálgast þetta mál. Það þýðir ekki að bíða þangað til það er orðið of seint að gera nokkurn skapaðan hlut.
Við hljótum eftir öll þessi ár sem ráðherrann nefndi að vera komin í aðstöðu til þess að kveða skýrt upp úr um það hvernig íslensk stjórnvöld ætla að nálgast þetta mál, hvort þau ætli að hleypa þessu öllu í gegn og halda áfram að veita upplýsingar um hvers vegna þurfi að gera það, eða fara í þá baráttu við EES-samninginn sem ráðherrann nefndi eða einfaldlega nálgast þetta á skynsamlegan hátt og innleiða ekki þennan pakka.