149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

drengir í vanda.

[11:14]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni. Ég held að það sé mikilvægt að við hugsum fyrst um grunnforsenduna. Af hverju stöndum við hér á Alþingi og ræðum stöðu drengja? Jú, það er vegna þess að samfélag okkar byggir á ákveðnu kynjakerfi þar sem við sjáum neikvæð samfélagsleg áhrif birtast með ólíkum hætti hjá drengjum og stúlkum og sömuleiðis hin jákvæðu áhrif.

Hv. þingmaður var hér með ýmsar spurningar og beinir þessari umræðu til mín því að hún heyrir vissulega undir mörg ráðuneyti og umboðsmaður barna heyrir jú undir mitt ráðuneyti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að minna á í því samhengi að í því frumvarpi sem liggur fyrir þinginu er gert ráð fyrir því að umboðsmaður barna fái aukið hlutverk við að afla gagna um stöðu barna, bæði drengja og stúlkna. Við þurfum að afla þessara gagna með heildstæðum hætti þannig að við getum tekið góðar ákvarðanir til framtíðar.

Ég vil byrja á því að segja að ég deili áhyggjum þeim sem birtust hjá hv. fyrirspyrjanda vegna lyfjaávísana til barna. Íslensk börn fá samkvæmt upplýsingum frá landlækni meira ávísað af tauga- og geðlyfjum en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum. Það á bæði við um stúlkur og drengi. Drengir eru líklegri til að fá slík lyf en stúlkur jafnt hér á landi sem á öðrum Norðurlöndum. Notkun þunglyndislyfja er svipuð raunar hjá stúlkum og drengjum fram að 14 ára aldri en eykst svo hjá stúlkum. Landlæknisembættið hefur haft þessa lyfjaávísanir til sérstakrar skoðunar og óskaði eftir skýringum á því. Sérstaklega hefur embættið lýsti yfir áhyggjum af ávísun ópíóíðaefna til bæði barna og fullorðinna.

Við þurfum að huga að kynjavinklinum eins og hv. þingmaður nefnir en ekki síður stéttavinklinum. Hverjir fá ávísanir á þessi lyf? Eru það hugsanlega drengir úr mjög krefjandi félagslegum aðstæðum? Þurfum við ekki að taka líka tillit til þess þáttar og ekki bara kyns þegar við ræðum þetta mál?

Ég vil nefna það sem er mikilvægt, að líðan nemenda á Íslandi er góð í samanburði við önnur lönd þegar kemur að líðan í skóla. Þegar spurt var um ánægju barna í alþjóðlegri könnun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar árið 2012 og líðan 15 ára skólabarna var Ísland í 4. sæti á alþjóðavísu. 89% drengja sögðu að sér liði vel en 85% stúlkna.

Það liggur fyrir að þessi viðfangsefni eru töluvert ólík milli kynjanna. Geðheilbrigðisvandamálin eru auðvitað einn stærsti vandi samtímans og við erum sem betur fer að taka þau mál upp á yfirborðið hér á Alþingi. Við samþykktum geðheilbrigðisáætlun, við erum að fjármagna geðheilbrigðisáætlun núna og það er mjög mikilvægt að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Eitt af því sem ég vil nefna sem ég fræddist um nýlega á ráðstefnu um heilbrigðistækni er að svo virðist vera sem karlmenn og drengir leiti frekar eftir slíkri þjónustu með aðstoð tækninnar. Það sé einfaldara fyrir þá að nýta tæknina til að leita sér heilbrigðisþjónustu sem þeir veigra sér við að gera með því að mæta á staðinn. Mér finnst til að mynda við eigum að skoða sérstaklega þá möguleika sem tæknin veitir okkur til að styðja betur við unga drengi.

Hv. þingmaður nefndi líka menntamál og það er rétt að drengir eru ólíklegri en stúlkur til að lesa sér til gagns. Það tengist líka umræðu um lesskilning almennt en eins og við þekkjum er lesskilningur lakari hér á landi en á öðrum Norðurlöndum. Nú hefur menntamálaráðherra sett fram frumvarp sem ætlað er að styðja verulega vel við bókaútgáfu hér á landi og ég held að það skipti máli að við fáum fleiri íslenskar sögur fyrir börn og ungmenni sem eru skrifaðar í íslensku samfélagi og fjalla um íslenskan veruleika. Það er líka mikilvægt að hugsa til þess að lesskilningur og lestur snýst ekki bara um skáldsögur þótt við séum söguþjóð. Hvað er ungt fólk að lesa? Er það ekki efnið sem er sett fram með öðrum hætti, t.d. á netinu? Er kommentakerfið það sem ungt fólk les í dag frekar en sögur? Þurfum við að huga að því hvernig þessum málum er háttað í skólakerfinu? Algjörlega tvímælalaust.

Mér finnst mikilvægt að nefna það hér að Kennarasambandið hefur svo sannarlega sett þessi mál á dagskrá, þ.e. lesskilning og íslenskukunnáttu ungs fólks og beggja kynja.

Tölvunotkunin sem hv. þingmaður nefnir er ólík milli kynjanna og þar þurfum við að hafa í huga að samskiptamiðlar virðast vera vinsælli hjá stúlkum, tölvuleikir vinsælli hjá drengjum. Þetta er eitthvað sem við þurfum að hafa í huga þegar við mótum þessa stefnu.

Að sjálfsögðu er mikilvægt að skoða kynjahlutfall í námi og brottfall úr skóla og samkvæmt þeim rannsóknum sem við höfum unnið í samráði við OECD virðist brottfall úr framhaldsskóla ekki síst ráðast af félagslegum og sálrænum aðstæðum. Því skiptir máli að við byggjum frekar upp aðgengi að sálfræðingum fyrir ungt fólk og slíka aðstoð. Það er einn liður í því að sporna gegn brottfalli.

Neikvæð umræða. Ég næ því miður ekki að ljúka ræðu minni hér en það er mjög mikilvægt að við hugum að því sem hv. þingmaður nefndi með samspil klámvæðingar, aukins aðgengis að klámi og (Forseti hringir.) þar með vitundar drengja um hvað það merkir að vera karlmaður í samspili við þá umræðu sem til að mynda hefur sprottið upp í kringum #metoo-byltinguna. Við getum ekki litið fram hjá því að kynbundið ofbeldi (Forseti hringir.) er svo sannarlega vandi í okkar samfélagi. Þar þurfum við ekki bara að styðja við stúlkur. (Forseti hringir.) Við þurfum líka að styðja við drengina og eyða þeirri meinsemd sem kynbundið ofbeldi er.