149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

drengir í vanda.

[11:24]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir að koma þessu mikilvæga máli á dagskrá. Í mína tíð, þegar ég var ungur, var sú aðferð oft notuð við unga menn sem höfðu stigið út af beinu brautinni að senda þá til sjós. Varð þannig margur drengurinn að manni, sem dæmi. Því er ekki til að dreifa í sama mæli í dag þótt eitthvað sé um það, enda breyttir tímar.

Þegar talað er um vanda drengja er hægt að líta á hann frá mörgum sjónarhornum. Vandi eins og lestrarfærni, læsi, brottfalli úr námi og hegðunarvandi er oft byrjun á einhverju sem verður að enn stærra vandamáli sem erfitt og dýrt getur verið að leysa. Ég kýs að kalla drengi karla undir 25 ára aldri.

Mig langar að benda á nokkrar staðreyndir í því sambandi. Samkvæmt upplýsingum fengnum af heimasíðunni Út með það falla 35–50 einstaklingar fyrir eigin hendi ár hvert. Árlega deyja um sex ungir menn 18–25 ára vegna sjálfsvíga. Ein kona 18–25 ára fellur fyrir eigin hendi annað hvert ár að jafnaði á Íslandi. Sjálfsvíg eru algengasta ástæða dauðsfalla af hjá ungum mönnum. Tölurnar eru meðaltal áranna 1996–2014.

Ég er ekki alveg viss um að í dag myndu þær tölur standast. Mig grunar að fjöldi þeirra sem látist hafa vegna ofneyslu lyfja sé allnokkur. Allt of margir ungir menn sitji í fangelsum landsins. Það er á okkar ábyrgð sem samfélags að gera allt sem við getum til að styðja við drengina okkar. Getur verið að við höfum gleymt drengjunum okkar? Ég er ekki með því að draga nokkra til ábyrgðar heldur að hvetja til þess að við skoðum hvað hægt er að gera. Við verðum að taka okkur á og skoða sérstaklega hvað veldur brottfalli ungra manna úr námi og verður að gera átak til að auka læsi og skilning ungra manna. (Forseti hringir.) Við verðum að tryggja fé í unglingageðdeildir og meðferðir fyrir ungt fólk.