drengir í vanda.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir umræðuna sem er mjög þörf en um leið finnst mér mjög langt gengið í fullyrðingum um stöðu drengja án samanburðar í tíma og rúmi. Við skulum aldrei gleyma því að mikill meiri hluti drengja er í góðri stöðu og rannsóknir sýna að líðan íslenskra barna og ungmenna er almennt góð í alþjóðlegum samanburði. Það setur okkur samt í þá stöðu að við eigum að geta gripið inn í og sinnt vel öllum þeim börnum sem líður illa eða eru í vanda.
Rannsóknir sýna mun á stöðu mismunandi hópa ungmenna á ýmsum sviðum, t.d. eftir kyni og uppruna. Það er engin ein lausn og enginn einn vettvangur til að jafna stöðuna. Það þurfa allir aðilar sem vinna með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um verkefnin og vinna saman. Til að njóta sín og nýta hæfileika sína þurfa öll börn tækifæri til að tilheyra og hafa hlutverk. Að tilheyra felst í að vera hluti af hóp og hópum, fjölskyldu vinahóp, bekk, félagi, samfélagi, þorpi, þjóð, að hafa örugg félagsleg tengsl. Að hafa hlutverk felst í því að fá tækifæri til að axla ábyrgð í samræmi við aldur og þroska og verða þannig smátt og smátt stjórnandi og ábyrgðaraðili fyrir eigin lífi.
Stærsta verkefnið sem við glímum öll við er að læra á okkur sjálf. Það reynist einstaklingum miserfitt og þeir þurfa til þess mismikinn stuðning. Heimili, skólar, heilsugæsla, félagsþjónusta og tómstundafélög styðja einstaklingana til þroska, byggja upp seiglu og verða að grípa þá sem þurfa stuðning eða verða fyrir áföllum. Nefnd um málefni barna, skipuð af félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur einmitt það hlutverk að endurskoða samstarf þeirra aðila til að tryggja snemmtæka aðstoð fyrir börn sem á henni þurfa að halda. Það er leiðin áfram. Að lokum vil ég þakka fyrir að umræðan fer fram á baráttudegi gegn einelti, 8. nóvember.