149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

drengir í vanda.

[11:41]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að deila um þá staðreynd að ungir drengir eigi erfitt uppdráttar. Ég held að það sé alveg ljóst, og svo sem ekkert nýtt heldur.

En ég held ef við ætlum að bæta stöðu ungra drengja að við þurfum eiginlega að byrja á að viðurkenna að drengir og stúlkur eru ólík frá náttúrunnar hendi, með örfáum undantekningum. En samfélagið er búið að ákveða, í nafni einhverrar rétthugsunar í dag, að munurinn sé enginn. Það er held ég stóra vandamálið í þessu, að allir eru settir í sama boxið. Það hentar ungum drengjum ekki endilega mikið.

Ég er enginn sérfræðingur í þeim málum en hef unnið mikið með ungum drengjum sem hafa lent á glapstigum og mín tilfinning er sú að við séum svolítið hætt að láta börn taka ábyrgð á rangri hegðun. Það má ekki í dag. Þau fá aldrei að bera ábyrgð á því sem þau gera rangt. Það eru lausatök þegar kemur að aga.

Það veldur því að á unglingsárunum eru börnin með skerta sjálfsmynd, óörugg. Til hvers leiðir það? Það leiðir til kvíða. Það leiðir til þess að menn fóta sig ekki, höndla ekki lífið.

Þetta er auðvitað ekki bundið bara við drengi. Stúlkur eiga í mjög miklum vanda og glíma við mjög mikinn kvíða og óöryggi. Lífið verður þá óhjákvæmilega erfitt.

Ég held að við eigum að tala meira um orsakir en afleiðingar og ég held að við þurfum að viðurkenna að við megum ekki bara vísa alltaf í réttindi barna og enginn þarf að taka ábyrgð.