drengir í vanda.
Frú forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál og ég vil þakka málshefjanda fyrir, hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni, sem og hæstv. forsætisráðherra fyrir að vera hér. Það er dálítið erfitt að finna einhvern einn umræðuflöt þegar við ræðum málefni dagsins um drengi í vanda en ég vel hér þann punkt málshefjanda að ræða um lestur drengja.
Það getur verið erfitt að stilla því þannig upp að drengir standi sig síður en stúlkur. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga að það eru ekki drengirnir sjálfir sem standa sig ekki heldur er það skólakerfið sjálft sem ekki hentar drengjum eins vel og stúlkum. Það þarf að huga að því að það er ekki til ein formúla, það er ekki ein uppskrift sem hentar öllum drengjum eða ein sem hentar öllum stúlkum. Í mínum huga er alltaf réttast að mæta einstaklingnum. Þannig á skólakerfið að vera og þannig verður starfsumhverfi kennara að vera. Kennarar leggja sig fram um að virkja áhugasvið allra nemenda sinna sem oft er lykill að frekara námi. Skólastarf byggir á gæðum og það er ekki aðeins einn mælikvarði eða ein leið sem gefur rétta svarið.
Vissulega skiptir lestur og lesskilningur máli, ég ætla ekki að gera lítið úr því, en það sem einnig skiptir máli er að viðurkenna að sá mælikvarði sem notaður er í því sambandi og oftast nær eyrum fólks mælir stakan þátt skólastarfsins. Hann segir ekkert til um gæði starfsins. Hann segir okkur ekkert um þroska- og menntunarhlutverk skólans og segir okkur í raun og veru ekkert áreiðanlegt um svo margt annað.