drengir í vanda.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir umræðuna sem ég tel að sé mjög þörf. Með henni getum við farið yfir þá þætti sem verið er að gera og hafa verið gerðir varðandi líðan barna og unglinga hér á landi.
Samkvæmt könnunum Rannsókna og greiningar sem gerðar eru meðal grunn- og framhaldsskólanemenda á aldrinum 10–20 ára hefur nemendum sem upplifa kvíða og þunglyndi því miður fjölgað töluvert undanfarin fimm til tíu ár, þó að almennt líði nemendum vel í skólakerfinu. Kvíði og þunglyndi hefur þó helst vaxið hjá stúlkum og hefur sams konar þróun átt sér stað í öðrum löndum.
Aukin umræða hefur átt sér stað um andlega líðan hjá ungmennum á framhaldsskólaaldri, sem er vel. Hefur hún orðið til þess að ungt fólk er opnara og talar meira um þessi mál en áður. Sem dæmi má nefna að haustfundur Ungmennaráðs Suðurlands árið 2017 ályktaði eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Ungmennaráð Suðurlands […] hvetur til þess að umfjöllun og fræðsla um geðræn vandamál verði gerð aðgengilegri með almennri kynningu fyrir börn og ungmenni og með góðu aðgengi að fagfólki, þar á meðal sálfræðingum. Nefndin hvetur til þess að þetta verði þegar kynnt yngri börnum og brugðist verði við þessu sem allra fyrst.“
Þar sem kvíði og þunglyndi byrja oft á grunnskólastiginu er mjög mikilvægt að grípa þar inn í með skimun og úrræðum. Í lýðheilsustefnu frá árinu 2016 er jafnframt lögð áhersla á börn og ungmenni að 18 ára aldri og lagt er upp með að öll sveitarfélög verði heilsueflandi samfélög, þar með talin öll skólastig og vinnustaðir. Í aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum 2016–2020 er einnig lagt til að skimað verði fyrir kvíða, þunglyndi og áhrifum áfalla meðal barna í efstu bekkjum grunnskóla og veittur viðeigandi stuðningur eða meðferð ef viðkomandi telst í áhættuhópi.