Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir ræðuna og yfirferð í þessu máli. Þetta mál er ekki sett fram til höfuðs öðrum flugvöllum heldur er þetta hugsað sem viðbót til að þétta öryggisnetið og horfa til þess að flugsamgöngur eru vaxandi hingað til lands. Það hefur sýnt sig, eins og kemur fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni, að þegar gaus í Eyjafjallajökli hefði þessi staðsetning verið mjög hentug ef til þess hefði komið að þurft hefði að hafa varaflugvöll.
Við flutningsmenn gerum okkur grein fyrir því að þetta þýðir nánast algjöra uppbyggingu á vellinum á svæðinu. Hann ber ekki þungar og stórar vélar eins og hann er í dag. Þetta er ekki að fara að gerast á morgun. Í sambandi við samgönguáætlun, og það sem þingmaðurinn kom inn á þar, þá berum við sem flytjum þetta mál ekki ábyrgð á samgönguáætlun. Ég geri mér alveg grein fyrir því að flugi almennt eru ekki gerð góð skil í þeirri áætlun, svo að það sé bara sagt. En orð eru til alls fyrst og öll ferðalög byrja á einu skrefi.