149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.

34. mál
[14:55]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hann koma inn á það sem ég hafði hugsað mér að nefna í síðara andsvari mínu varðandi rekstrarkostnaðinn. Það er eitt að leggja mat á hvaða aðgerðir þarf að fara í til að völlurinn sé nothæfur sem varaflugvöllur, en svo kemur að rekstrinum. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það. En ég held að það sé mikilvægt að taka það líka inn í þessa umræðu, þegar við ræðum þessa þætti, þ.e. reksturinn til lengri tíma litið. Ég ætla ekki að gera lítið úr því. Ég held að það sé býsna mikilvægt að hér séu öflugir varaflugvellir. Það eru ákveðnir flugvellir sem uppfylla þau skilyrði í dag. En eins og hv. þingmaður hefur verið duglegur við að benda okkur á þarf að ráðast í ákveðin átaksverkefni hvað þann lið varðar.

En mig langaði aðeins að koma inn í þessa umræðu og ítreka mikilvægi þess að við horfum á stóru myndina og forgangsröðunina. Því miður eigum við ekki alla þá fjármuni sem við svo gjarnan vildum setja í að bæta samgöngur þrátt fyrir að mjög svo auknir fjármunir fari nú í þessi mál, eins og við sjáum í nýrri samgönguáætlun. Það er samt þannig að við viljum miklu meira og við viljum að mörg af þessum verkefnum verði að veruleika fyrr.

Það var kannski aðallega þetta sem ég vildi segja í þessu samhengi, hvernig okkur ber að horfa á þetta. Við verðum alltaf að horfa á stóru myndina til langs tíma litið og rekstrarkostnaðinn líka.