149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.

34. mál
[14:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, takk fyrir spurninguna. Það er kannski einmitt það sem maður myndi benda á að væri mjög æskilegt. Ég veit að það er gríðarlega mikill áhugi, og hefur verið lengi, á Norðvesturlandi fyrir því að skoða Alexandersflugvöll sem varaflugvöll og uppbyggingu þar. Það væri mjög sterkt fyrir slíkt verkefni að sveitarfélögin ynnu verkefni sem tengdust þessu, bæði varðandi fjárfestingarkostnað, stofnkostnað, hvað þyrfti að koma til, og síðan aftur upplýsingar um raunverulegan rekstrarkostnað. Þetta er annars vegar fjárfesting og síðan rekstur, daglegur rekstur. Þá snýst þetta líka um skilgreiningar; er þetta flugvöllur með stjórn eða flugvöllur án stjórnar og síðan eru það véladeildir og viðhald og annað þess háttar.

Til að þingsályktunartillagan stæði sterkari fótum væri mjög æskilegt að slíkar upplýsingar væru fyrirliggjandi. Auðvitað er verið að biðja um það í verkefninu og vonandi berast þær upplýsingar síðar. En þetta er í grunninn það sem ég vildi nefna. Það er hins vegar einn flugvöllur sem hefur sögulega verið alþjóðaflugvöllur og það er flugvöllurinn á Höfn í Hornafirði. Hann var skilgreindur sem alþjóðaflugvöllur. Hann nýttist mjög vel fyrir minni vélar sem voru að fara yfir hafið, sem öryggisvöllur fyrir Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvöll, en menn flugu þar fram hjá. Það var gott þegar menn komu yfir hafið á minni vélum í lágri hæð að hafa hann sem öryggisventil á þeirri flugleið. Það er dæmi um það sem maður myndi kannski skoða næst og þá fyrir minni vélar, að hann yrði skilgreindur með ákveðna þjónustu til að sinna því hlutverki. Á Höfn í Hornafirði held ég að málið snúist kannski meira um tollþjónustu og slíka þætti. Það er ekki stórt mál en það getur verið ákveðið öryggismál að koma inn í slíkt verkefni.

Við vitum auðvitað líka um áhuga víða um land á að byggja upp alþjóðaflugvelli. Við höfum heyrt það í Árborg. Við höfum heyrt það um Ísafjörð og Alexandersflugvöll og fleiri staði, enda eru menn mjög áhugasamir um þessi málefni. Það er ljóst.