Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.
Hæstv. forseti. Mér finnst ég vera stödd í miðri kennslustund. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa umræðu.
Ég hef hlustað vel hér. Nú er talað um að við þurfum að hafa einhvern ákveðinn tímaramma á því hvenær við óskum eftir svörum um þessi mál. Við vorum með janúar í tillögunni og þá er spurning hversu langt fram í næsta ár við þurfum að fara til að tímasetningin sé raunhæf.
Síðan velti ég fyrir mér gæða- og öryggismálum, hvernig er þeim háttað í dag á þeim varaflugvöllum sem við erum með í dag og þess vegna líka Keflavíkurflugvelli. Þá er ég að velta fyrir mér snjómokstri eða snjóruðningi og brunavörnum. Er einhver ákveðin úttekt eða er þeim málum einhvern veginn fylgt eftir? Hvernig er því hagað á þeim varaflugvöllum sem við erum með núna ásamt Keflavíkurflugvelli?
Svo voru hér ýmis hugtök sem eru alger nýyrði í mínum huga. Það er það sem kallað er stjórnaður flugvöllur eða óstjórnaður. Í hverju liggur munurinn? Ég spyr að þessu vegna þess að einhvern veginn læðist að mér sá grunur að óstjórnaður flugvöllur sé ekki eins dýr í rekstri og stjórnaður. Ég velti þessum hlutum fyrir mér í þessari kennslustund.