149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.

34. mál
[15:00]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka spurninguna. Ég kom aðeins inn á það með vottanir á flugvöllum og alþjóðaflugvöllum. Það er búið að vera að herða þessar kröfur mjög síðustu ár og nýjar reglur voru teknar í notkun minnir mig við síðustu áramót, þannig að allir alþjóðaflugvellirnir fjórir á Íslandi, Keflavík, Reykjavík, Akureyri og Egilsstaði eru vottaðir alþjóðlegum vottunum frá ESA. Þetta ferli hefur verið að þyngjast. Það eru gerðar meiri og meiri kröfur um alþjóðaflugvelli. Þetta fór töluvert af stað eftir árásirnar í New York 11. september 2001. Þá varð gríðarleg breyting t.d. á öryggismálum flugvalla og kröfum tengdum þeim. Það hefur verið að bætast töluvert í vottanir, hvernig þurfi að standa að rekstri og öllu því.

Stjórnaður flugvöllur og óstjórnaður flugvöllur. Í stystu útgáfunni er flugumferðarstjóri á stjórnuðum flugvöllum sem stýrir umferðinni og á óstjórnuðum flugvöllunum eru ekki flugumferðarstjórar heldur svokallaðir AFIS-menn, flugvallarverðir, sem gefa flugupplýsingar á þeim flugvöllum. Það er nú munurinn. Í dag á Íslandi eru flugumferðarstjórar á Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli. Það er grunnmunurinn á þessu tvennu.