149. löggjafarþing — 29. fundur,  8. nóv. 2018.

sjóðir og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og málefni aldraðra.

40. mál
[18:52]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Í stuttu máli er málið flutt óbreytt eins og það hefur verið flutt áður. Flutningsmenn gerðu sér grein fyrir á sínum tíma að frumvarpinu yrði ekki tekið með kostum og kynjum af þeim sem það varðar, þ.e. af þeim sjálfstæðu sjálfseignarfélögum sem um þessi mál véla og við vorum svo sem ekkert alveg vissir um að Ríkisendurskoðun vildi endilega taka þetta að sér, þ.e. að þeir teldu að þeir hefðu það mörg verkefni með höndum og þetta verkefni væri ekki endilega á þeirra færi. En það fylgir því mikil ábyrgð þegar við horfum á það að meiri hluti þeirrar umönnunar sem öldruðum býðst á Íslandi er einmitt í eigu eða á vegum annaðhvort einkaaðila eða sjálfstæðra sjálfseignarfélaga en eru hins vegar oft og tíðum studd og styrkt af ríkinu.

Það er einhvern veginn þannig að við höfum þá trú að þeir sem njóta stuðnings eða sérstakra styrkja frá ríkinu eigi í sjálfu sér að sæta því að mál þeirra séu vel endurskoðuð og standist skoðun og þess vegna var í sjálfu sér ekki tekið sérstaklega tillit til þess að menn höfðu uppi athugasemdir við málið þannig lagað. Eins og ég segi aftur, við áttum alveg von á því og bjuggust við því að þessu yrði ekki tekið af miklum fögnuði vegna þess að verið er jú að leggja mönnum þarna auknar skyldur á herðar og verið er að boða mönnum það að þeir sæti öflugra eftirliti með starfsemi sinni en áður var. En það breytir því ekki að þessir atburðir sem gerðust á sínum tíma og seinni atburðir hafa í sjálfu sér staðfest það að full ástæða er til að þessi mál séu vel endurskoðuð.