149. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2018.

notkun og ræktun lyfjahamps.

49. mál
[17:45]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir kynninguna á þessari þingsályktunartillögu. Ég verð að segja að ég fagna umræðunni um hana því að umræðan um þetta mál, sem er notkun og ræktun lyfjahamps, er oft og tíðum á hástigi eins og gjarnt er með umræðu í okkar góða samfélagi.

Við undirbúninginn á komu minni hingað ræddi ég við tvo góða krabbameinslækna sem ég hef aðgang að sem og renndi í gegnum þær umsagnir sem bárust síðast þegar þingflokkur Pírata lagði fram óbreytta þingsályktunartillögu. Eftir að hafa hlustað á þá sérfræðinga sem ég ræddi við, því að það vita allir sem vilja að ég er enginn sérfræðingur í lækningum, er ég eiginlega komin mun lengra frá því að átta mig á þessari þingsályktunartillögu.

Og af hverju? Jú, vegna þess að þeir sérfræðingar sem ég ræddi við bentu á að vísindin væru sem betur fer komin svo langt að þau væru búin að finna margvísleg lyf sem hefðu í rauninni sömu virkni og það kannabis sem hér er verið að tala um, þennan lyfjahamp. Það er til lyf sem heitir t.d. Marinol sem gerir sama gagn og lyfjahampurinn hvað varðar að slá á ógleði og lystarleysi. Svo bendir Lyfjafræðingafélag Íslands í umsögn sinni á lyfið Sativex sem inniheldur kannabínól/kannabídíól, sem hefur verið notað fyrir sjúklinga með MS-sjúkdóm.

Þannig var mér tjáð, og ég sé það í nokkrum umsögnum, að vísindin, lyfjafræðivísindin hafi nýtt þau efni sem finna má úr þessari jurt. Þau hafa nýtt þau læknisfræðilega, með vísindum sínum, með rannsóknum sínum hafa þau fundið og náð að kljúfa virka nytsamlega efnið úr jurtinni og skilja frá efnið sem veldur vímunni, sem veldur því að manneskjan verður vímuð og ánetjast.

Það er auðvitað það sem við hljótum að vilja, að geta nýtt efnið sem gagnast í þeim tilgangi en kannski reyna að komast hjá því að nota efni sem beinlínis skaðar. Þá erum við að tala um að manneskjan verði út úr heiminum og líði beinlínis illa út af því, hvort tveggja manneskjunni sem og þeim sem standa henni næst.

Það var líka áhugavert að lesa umsögn frá Félagi hjúkrunarfræðinga sem í rauninni rímar mjög við það sem læknir sagði við mig, sem kemur fram í greinargerð þingsályktunartillögunnar, með leyfi frú forseta:

„Rannsóknir þessar hafa sýnt fram á að lyfjahampur hefur raunverulegt notagildi, m.a. í meðferð gegn krabbameini, gegn taugasjúkdómum og öðrum alvarlegum sjúkdómum.“

Það er einmitt sú setning sem læknirinn sem ég talaði við hnaut um og sagði að væri alger fjarstæða. Það má líka lesa úr umsögn Félags hjúkrunarfræðinga.

Það er mjög fróðlegt að lesa umsagnir og heyra í þeim sem fást við þennan sjúklingahóp á hverjum degi því að það fólk leggur sig allt fram við að gera daglegt líf sjúklinganna eins bærilegt og mögulegt er. Því geta auðvitað fylgt vítiskvalir og mikið lystarleysi og ógleði, út af þeim erfiðu inngripum sem eru t.d. í krabbameinsmeðferðum en einnig öðrum inngripum.

Sá læknir sem ég talaði við talaði um að lyfjahampur hefði ekkert notagildi í meðferð, að engar klínískar leiðbeiningar væru byggðar á rannsóknum sem mæltu með því. Hann talaði um að þetta gæti vissulega verið slökunarþáttur en það væri engin lækning við lífsógnandi sjúkdómum sem fælist í notkun lyfjahamps. Var það fullyrt í mín eyru og má líka lesa það í þeim umsögnum sem ég hef nú lesið.

Það er vert fyrir Alþingi, þó að þar sitji líka læknar og mögulega lyfjafræðingar, að hlusta á sérfræðinga þegar kemur að þessu. Ég verð að segja að ég held að mjög gott sé fyrir hv. velferðarnefnd, sem fær væntanlega málið til meðferðar, að kalla til sérfræðinga á því sviði, bæði lyfjafræðinga og þá sem skrifa daglega upp á lyf fyrir þá sem þjást af ýmiss konar sjúkdómum; krabbameini, taugasjúkdómum eða öðrum alvarlegum sjúkdómum. Þar er þekkingin. Þeir geta þá væntanlega sagt okkur nákvæmlega hvaða lyf innihalda virka efnið í þessum lyfjahampi, hvernig það er skrifað út og hvort einhverjar undanþágur séu yfirleitt veittar í dag þannig að sá sem vill nota þetta geti gert það.

Að öðru leyti verð ég að taka undir það með hv. flutningsmanni og hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að mikilvægt sé að við ræðum einnig á þinginu að afglæpavæða neysluskammta af kannabis, enda tel ég það þvælast mjög fyrir í kerfinu að vera að tefja lögregluna við mikilvæg mál þegar gripnir eru unglingar með eina jónu í brjóstvasanum. En það er önnur umræða.

Ég þakka annars fyrir umræðuna og hlakka til að fylgjast með.