149. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2018.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

45. mál
[18:40]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, breytingu sem myndi fella á brott skilyrði um EES-ríkisborgararétt þegar kemur að störfum á vegum ríkisins. Mál þetta var áður flutt á 146. löggjafarþingi og síðan 148. löggjafarþingi, hlaut þá ekki afgreiðslu, en þá var fyrsti flutningsmaður Pawel Bartoszek.

Að frumvarpinu stendur að þessu sinni þingflokkur Viðreisnar, sem er í takti við þá stefnu sem birt er á heimasíðu flokksins í kafla um málefni innflytjenda og flóttamanna. Þar stendur skýrt að fólk utan EES eigi að eiga greiðari leið að vinnu og búsetu hér á landi. Við viljum einfaldlega að uppfylla það loforð með því að opna meira opinbera vinnumarkaðinn þannig að þetta gildi líka um fólk utan EES.

Frumvarpið er í rauninni ekki ýkjalangt, frú forseti, en 1. gr. þess hljóðar svo, með leyfi forseta: „4. tölul. 1. mgr. 6. gr. laganna fellur brott.“

Þetta er tiltölulega einfalt. Þessi 6. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins fjallar fyrst um almenn skilyrði um ráðningu í starf, það er í fyrsta lagi 18 ára aldur, þó með einhverjum undantekningum fyrir störf eins og ræstingar, sendilsstörf og þess háttar. Síðan er fjallað um lögræði, lögræðiskröfuna, í þriðja lagi um nauðsynlegt heilbrigði og í fjórða lagi er sá málsliður sem þetta frumvarp kemur inn á. Ég ætla að fá að lesa hann, með leyfi forseta:

„Íslenskur ríkisborgararéttur. Þó má ráða ríkisborgara frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkjum stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum til starfa með sömu kjörum og íslenska ríkisborgara. Einnig má víkja frá þessu ákvæði þegar um er að ræða aðra erlenda ríkisborgara ef sérstaklega stendur á.“

Í 5. málslið 6. gr. laganna er fjallað um almenna menntun og þá sérmenntun sem viðkomandi starf krefst og í 6. málslið síðan er fjallað um fjárforræði þegar um er að ræða starf sem fylgja fjárreiður.

Við leggjum sem sagt til að krafan um ríkisborgararéttinn falli brott en að kröfurnar um aldur, lögræði, heilbrigði, menntun og fjárforræði verði óbreyttar. Við teljum að núgildandi ákvæði skipti útlendingum á Íslandi í tvo hópa þar sem annar hópur útlendinga hefur sömu tækifæri og Íslendingar til að starfa hjá ríkinu en hinn ekki. Rétt er að vekja athygli á að takmörkun 4. töluliðar nær einnig til ríkisborgara frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins sem fengið hafa m.a. ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi eða dvalarleyfi sem ella myndi veita þeim heimild til að vinna viðkomandi starf.

Að mati flutningsmanna frumvarpsins er reglan einfaldlega barn síns tíma og óþarflega íþyngjandi sem betur færi á að afnema. Ísland sker sig úr meðal norrænna ríkja hvað ákvæðið varðar. Hvorki í Svíþjóð, Danmörku, Noregi né Finnlandi er lengur að finna ákvæði sem þessi. Alls staðar eru störf hjá ríkinu aðgengileg þeim sem hafa tilskilin atvinnuleyfi. Þetta er mjög einfalt.

Eðli málsins samkvæmt er víða gerð krafa um tungumálakunnáttu og fleira þess háttar til að gegna tilteknum störfum og hróflar þetta frumvarp ekki við því að sett séu slík málefnaleg skilyrði við veitingu starfa hjá ríkinu. Þá er ekki lagt til að gerðar verði breytingar á þeirri kröfu 20. gr. stjórnarskrárinnar að embættismenn skuli vera íslenskir ríkisborgarar en til embættismanna heyra m.a. dómarar og lögreglumenn, samanber 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þetta ákvæði verður náttúrlega líka farið yfir í þeirri stjórnarskrárvinnu sem nú stendur yfir. Flest ríki setja slíkar reglur þegar kemur að þeim sem fara með opinbert vald en mun sjaldgæfara er að slíkt gildi um störf eins og t.d. kennara, lækna, hjúkrunarfræðinga, sérfræðinga eða aðra sem vinna hjá ríkinu.

Ég tel að rétt sé að fara aðeins yfir sögu þessarar löggjafar á Íslandi en fyrstu útgáfu þessarar greinar í einhverju formi er að finna m.a. í konungsbréfi frá 8. apríl 1844 um íslenskukunnáttu þeirra sem sækja um embætti á Íslandi. Þar er kveðið á um að sérhver sem fær ráðningu í embætti á landinu hafi þekkingu á máli landsins, að hann geti hið minnsta skilið innfædda og að þeir geti skilið hann. Þarna var vissulega ekki hægt að krefjast íslensks ríkisfangs enda Ísland ekki orðið fullvalda ríki á þessum tíma. Slíkt ákvæði rataði hins vegar í stjórnarskrá okkar og í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins frá 1954 er að finna ákvæði sem á við alla starfsmenn á vegum hins opinbera, ekki bara embættismenn. Þar var ein af kröfunum íslenskur ríkisborgari en þar stóð orðrétt, með leyfi forseta:

„Víkja má þó frá þessu ákvæði, ef telja má sérstaklega eftirsóknarvert að fá erlendan ríkisborgara til að gegna starfa til bráðabirgða, en eigi má skipa hann fyrr en hann hefur öðlazt íslenzkan ríkisborgararétt.“

Þetta var 1954. Með EES-samningnum var síðan gerð gjörbreyting á ákvæðinu en eftir það hljómaði ákvæðið svo, með leyfi forseta:

„Íslenskur ríkisborgararéttur. Þó getur ráðherra heimilað að ríkisborgarar annarra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins verði ráðnir til starfa með sömu kjörum og íslenskir ríkisborgarar. Einnig má víkja frá þessu ákvæði ef telja má sérstaklega eftirsóknarvert að fá erlendan ríkisborgara til að gegna starfi til bráðabirgða.“

Með EES-samningnum gat ráðherra heimilað EES-borgurum að fá opinbert starf. Síðan var áfram kveðið á um í fyrsta ákvæðinu að hægt væri að ráða starfsmann til bráðabirgða ef það væri sérstaklega eftirsóknarvert.

Með nýjum lögum var síðan stigið annað stórt skref og þá er ákvæðið eins og það hljómar núna. Krafan um leyfi ráðherra var felld á brott gagnvart EES-borgurum og þess var ekki lengur krafist að ráðning borgara frá löndum utan EES væri til bráðabirgða.

Alls staðar á Norðurlöndunum hefur verið fallið frá kröfum um ríkisfang við opinber störf. Slíkar reglur gilda ekki í Hollandi, ekki Kanada, Bandaríkjunum, Bretlandi eða á Írlandi. Á mörgum stöðum eru heimilaðar undantekningar. Ísland er eitt dæmi um slíkt. Þýskaland er annað og sums staðar, t.d. í Frakklandi, Tyrklandi eða Póllandi, er lagalega krafan um ríkisborgararétt nokkuð afdráttarlaus og skýr.

Það er okkar mat að núgildandi reglur geti virkað hamlandi og dregið úr sveigjanleikanum á hinum opinbera vinnumarkaði. Þrátt fyrir að framkvæmdin í dag sé í raun að færast í það horf sem við vildum að lögin væru í gæti það breyst aftur til baka án þess að lagasetningu þyrfti sérstaklega til. Við viljum ekki að löggjafinn setji reglur sem gætu virkað letjandi á hæft fólk sem annars myndi sækja um störf á vegum hins opinbera. Hið opinbera gengur í rauninni lengra en fyrirtæki á einkareknum markaði hvað þetta varðar. Þar eru almennar reglur um atvinnu- og dvalarleyfi látnar duga en ríkið sér sérstaka ástæðu til að setja strangari kröfu. Við teljum ekki vera nein málefnaleg rök fyrir slíku og leggjum þess vegna þetta frumvarp fram, þó svo, og vil ég undirstrika það, að hægt sé að setja málefnaleg skilyrði um málefnalega þætti, eins og t.d. um íslenskukunnáttu o.s.frv.

Atvinnumarkaðurinn skiptist í þrennt, hið opinbera, almenna og einkarekna markaðinn. Svo geta einstaklingar verið sjálfstætt starfandi, mættu auðvitað vera enn fleiri. Einkamarkaðurinn er hvað mest opinn hvað þetta varðar. Þar eru ekki sérstakar kvaðir um ríkisborgararétt þegar menn hafa fengið atvinnuleyfi. Þetta snýst líka um það að fólk hefur fengið atvinnuleyfi. Við teljum mikilvægt að tryggja frjálslynda löggjöf og að hún sé a.m.k. í samræmi við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar, í þeim löndum sem við berum okkur alla jafna saman við, eins og Norðurlöndin, og afnema þessa kröfu sem að einhverju leyti er hvort sem er ekki mikið farið eftir lengur. Það er líka raunveruleikinn. Afnám þessa skilyrðis myndi færa okkar löggjöf til sama horfs og þekkist á Norðurlöndum eins og ég hef þegar sagt.

Afnám þessa skilyrðis myndi einnig bæta skor okkar í ýmsum alþjóðlegum samanburði. Ég vil í því sambandi nefna sérstaklega að nefna MIPEX-kvarðann, sem mælir það hve vinveitt ríki eru innflytjendum. Við undirbúning þessa máls var athugað hvaða þýðingu þetta ákvæði hefði á stærstu ríkisreknu vinnustaði landsins, Landspítalann og Háskóla Íslands. Þeir staðir virðast ráða töluvert af starfsfólki alls staðar að úr heiminum og ákvæðið virðist því ekki þvælast mikið fyrir þessum stofnunum, blessunarlega. Þá gætu sumir notað það sem rök fyrir því að það þyrfti mögulega ekkert að breyta þessum lögum. Við í Viðreisn leggjum hins vegar áherslu á að lögin eiga að vera birtingarmynd af því sem við búum við og við eigum líka að tryggja að við búum í opnu samfélagi, fjölbreyttu samfélagi og fjölmenningarlegu samfélagi.

Þess vegna vil ég leyfa mér, virðulegur forseti, að mæla með því í lokin að frumvarpið gangi til meðferðar hjá hv. efnahags- og viðskiptanefnd og til 2. umr. og vonast ég til að málið fái góðan framgang og umfjöllun þar.