149. löggjafarþing — 33. fundur,  19. nóv. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[18:06]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni yfirgripsmikla ræðu. Hv. þingmaður endaði ræðu sína á því að tala um 900 milljarða hófadyn. Ég er ekki hissa á því að hv. þingmaður finni fyrir því. Einhver rödd hvíslaði því jafnframt innra með hv. þingmanni að stjórnarliðar myndu gagnrýna tekjuöflunarleiðirnar. Ég ætla að gera það hér vegna þessa að þær eru í þeim tilgangi einum að hverfa inn í þennan hófadyn og auka einhvers staðar á útgjöld. Ég spyr bara: Hvað ætlar hv. þingmaður að segja, ef við tökum veiðigjaldið, við hundruð útgerða úti um allt land sem ekki standa undir hækkun á veiðigjaldi? Svo er veiðigjaldið afkomutengt þannig að ef betur árar í sjávarútvegi, sem við skulum vona að verði, þá hækka veiðigjöldin. Ég átta mig ekki alveg á þessum tillögum um veiðigjöldin.

Hv. þingmaður talar mikið um mikilvægi jöfnuðar. Ég deili þeirri skoðun. Framsóknarflokkurinn er félagshyggjuflokkur. Jöfnuður er, eins og hæstv. forsætisráðherra kom inn á í ræðu, ógn við lýðræði, ógn við hagsæld, ógn við frið. Ég tek undir það allt. Það var afar góð ræða.

Ég vil spyrja hv. þingmann: Hversu mikill jöfnuður er æskilegur? Hvernig eigum við að mæla hann? Á hvað eigum við að horfa? Hvaða kerfum eigum við að beita til að ná fram auknum jöfnuði? Ég deili ekki þeirri skoðun hv. þingmanns sem sagði að hér væru ekki góð lífskjör, hér væri ekki jöfnuður og hér væri ekki réttlæti. Ef við skoðum það í alþjóðlegum samanburði þá búum við í afar góðu samfélagi.