fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur prýðisræðu, mjög uppbyggilega ræðu, þar sem farið var yfir mjög margt af því sem við ræðum í þessari umræðu um fjárlagafrumvarpið. Hv. þingmaður setti upp mjög sterk byggðagleraugu og nefndi mjög marga athyglisverða punkta sem við getum hugað að. Ég ætla að staldra við einn þeirra hér í fyrra andsvari, sem er landbúnaður og matvælaframleiðsla. Þær hugmyndir sem hv. þingmaður ræddi voru reyndar mjög í takti við það sem kemur fram í áliti meiri hluta fjárlaganefndar. Það er rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að óverulegar breytingar eru á fjárveitingum á málefnasviðinu enda er yfirgnæfandi hluti fjárhagsrammans bundinn í samningum ríkisvalds og bænda.
Á undanförnum árum hefur þrengt mjög að rekstrarumhverfi landbúnaðar. Við getum nefnt tollverndina, hún hefur minnkað. Það er hærri launakostnaður í úrvinnslu afurða og stóraukinn innflutningur í beinni samkeppni. Til að halda afurðaverði lágu til neytenda hafa lækkanir í raun verið sóttar til bænda ef við horfum á virðiskeðjuna.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái fyrir sér, af því að hv. þingmaður kom mjög vel inn á rannsóknir og þróun og nýsköpun, að við bregðumst við vandanum í gegnum það kerfi, í gegnum þá stefnu.