149. löggjafarþing — 33. fundur,  19. nóv. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:26]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara svo að ég endurtaki stuttlega spurningarnar, þær gengu út á það hvernig hv. þingmaður hefði viljað sjá aukningu í þessum málaflokkum, annars vegar til málefna fatlaðs fólks og hins vegar til málefna aldraðra. Í málefnum fatlaðs fólk hafa raunútgjöldin aukist um 75%, endurtek 75%, frá árinu 2010 og í málefnum eldri borgara um 150% frá sama tíma. Hvernig getum við rekið þetta sama kerfi með sjálfbærum hætti?

Það var áhugavert að þingmaðurinn kom einmitt inn á þessi hagfelldu ytri skilyrði. Ég ætla ekkert að mótmæla því að svo hafi verið, en ég held líka að við verðum að átta okkur á því að við höfum hreinlega staðið okkur mjög vel. Þegar ég segi að við höfum staðið okkur vel þá er ég að meina þjóðin öll, við höfum náð ótrúlegum árangri við að ná þeirri stöðu sem ríkissjóður stendur frammi fyrir í dag. Það er m.a. vegna þess að við höfum verið að lækka heildarskuldir ríkisins. Þær hafa lækkað um 658 milljarða á sex árum. Það sem við greiðum í vaxtagjöld á næsta ári er svipað og við leggjum til samgöngu- og fjarskiptamála. Það er því mikilvægt að nýta slíka tíma (Forseti hringir.) einmitt til að greiða niður skuldir svo við eigum aukið fjármagn til að setja í mikilvæg málefni eins og málefni fatlaðs fólks og málefni eldri borgara.