fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni hið seinna andsvar. Ég held að það fari ekkert á milli mála, við höfum heyrt það frá talsmönnum öryrkja nánast hvert sem litið er og við höfum líka heyrt það frá talsmönnum eldri borgara, að það ríkir gríðarleg óánægja meðal þessara hópa með það hvernig til hefur tekist varðandi þeirra mál á undanförnum árum. Bæði kvarta þeir mjög undan skerðingum og ónógum bótum. Ég held að það fari ekkert á milli mála að það hafi verið gengið allt of hart að þessum hópum, sérstaklega hvað varðar skerðingar. Kannski er hægt að setja þetta nefnilega í samhengi við þann góða árangur (Forseti hringir.) að lækka skuldir svona mikið, þ.e. það hafi gleymst dálítið að treysta innviðina og treysta velferðarsamfélagið (Forseti hringir.) í kappinu við að greiða niður skuldirnar.