fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það voru nokkur atriði sem ég hjó eftir og mig langar að spyrja hv. þingmann frekar út í þau. Fyrst er lýtur að málaflokki fatlaðs fólks og öryrkja sem hefur verið mikið til umræðu. Margoft hefur verið tekið fram hversu mikið er verið að auka í í þeim málaflokki og hversu mikið hefur verið aukið í hann á síðustu árum. Þróun þess útgjaldaliðar er 30 milljarða raunaukning, eða 75% frá árinu 2010 — fer úr 40 í tæpa 70 milljarða fyrir næsta ár.
Ég held að ég hafi heyrt hjá hv. þingmanni eitthvað í þá veru að ráðherra gæti ekki ákveðið hvernig ætti að nálgast málið. Ég hygg að hv. þingmaður þekki vel verklagið sem er í gangi. Það er vinnuhópur að störfum sem er að undirbúa tillögur um endurbætur á örorkumatskerfinu og nýtt framfærslukerfi. Ég held að í þeim ágæta hópi eigi allir stjórnmálaflokkar sinn fulltrúa, ásamt því að þar er verið að vinna með haghöfum að því hvernig við getum séð þetta kerfi verða sjálfbært til lengri tíma litið.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hún ósammála því að sú þverpólitíska leið sé farin að reyna að ná sátt um það hvernig þetta kerfi skuli vera til framtíðar?
Ég tel býsna mikilvægt að við finnum leið til að byggja upp þetta mikilvæga kerfi þannig að það geti staðið til lengri tíma. Við sjáum ótrúlegar tölur þegar kemur að fjölgun öryrkja. Ég myndi svo gjarnan vilja taka umræðu við hv. þingmann, sem ég veit að hefur miklar skoðanir á því hvernig við getum bætt lýðheilsu þjóðarinnar, um hvort aðrar aðgerðir gætu komið að gagni til að draga úr þessum fjölda. Hvað segir hv. þingmaður? (Forseti hringir.) Vill hún hætta við þetta þverpólitíska samstarf og samstarf við hagaðila um að ná saman um framtíðarfyrirkomulag?