149. löggjafarþing — 33. fundur,  19. nóv. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[21:23]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir frábæra hugmynd. (Gripið fram í.) En svo að ég byrji nú á seinni hlutanum skammaðist ég út í það að tekin væri í burt þessi fyrirhugaða kaupmáttaraukning upp á hálft prósent. Það kemur ekki öðrum útgjöldum til aldraðra við. Ég er sammála því að í þann flokk fara miklir fjármunir, stór hluti ríkisútgjalda, þó að ekki sé nóg að gert þar frekar en víðar. Það er bara veruleiki stjórnmálanna. En að taka burt þessa kaupmáttaraukningu, sem ekki var nú há fyrir, 0,5%, þegar verðbólguspáin er á uppleið, fannst mér ekki mjög stórmannlegt.

Ég verð að viðurkenna að ég starfa ekki hraðar í toppstykkinu núna en svo að ég er búin að gleyma fyrri spurningunni. Kannski hv. þingmaður geti bætt úr því. (BHar: Mismunurinn á milli …) — Já, í prósentum. Nei, veistu það, ég bara man það ekki. Ég er bara að horfa á milljarðana akkúrat núna. Ég er því ekki með það. En eins og ég kom inn á í upphafi ræðu minnar var það eitthvað um 7 milljarða niðurskurður sem vissulega var rökstuddur með þessari þjóðhagsspá. Síðan koma nokkur verkefni inn á milli í staðinn. Ég nefndi einhver þeirra. Niðurskurðurinn er sem sagt fyrst og fremst í velferðarkerfinu en síðan einhver uppbót, þannig að ég held að þetta séu um 4 milljarðar. Prósentuna er ég ekki með á hreinu.