alþjóðadagur barna.
Í dag, þann 20. nóvember, er alþjóðadagur barna. Í tilefni dagsins hafa allir þingmenn fengið á borð sín skilaboð frá börnum í Flataskóla undir yfirskriftinni „Börn fá orðið“ þar sem þau vekja athygli á tjáningarfrelsi barna og rétti þeirra til þátttöku. Skilaboðin eru skrifuð á loftbelgi og vonast börnin til að skilaboðin geti, með aðstoð stjórnvalda, borist til leiðtoga heimsins, m.a. þau mikilvægu skilaboð að öll börn eigi að fá vernd gegn ofbeldi, öll börn eigi að ganga í skóla, öll börn eigi að fá hreint vatn og heimili, eiga vini og fjölskyldu og að stelpur og strákar eiga jafn mikinn rétt til að tjá sig.
Vona ég að þingmenn taki vel við þessari sendingu.