149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

skipting ríkisfjármuna.

[13:39]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir áhugaverða fyrirspurn sem vekur möguleika á að svara á ýmsan hátt. Verandi elsta barnið í minni fjölskyldu þá vil ég vísa því á bug að miðjubörn beri alla ábyrgð. Það gera auðvitað þeir sem eru elstir, enda er Framsóknarflokkurinn elsti flokkur í ríkisstjórn. Það getur vel verið að við berum þar af leiðandi líka mesta ábyrgð í ríkisstjórninni. Það að hv. þingmaður sé búinn að leggja saman eitthvað sem menn þurfa að koma heim og saman við 2. umr. fjárlagafrumvarps, þá ítrekar það auðvitað mikilvægi þeirra málaflokka sem Framsóknarflokkurinn heldur á í ríkisstjórninni og er auðvitað ástæðan fyrir því að við sóttumst akkúrat eftir því að leiða þessi mikilvægu þrjú ráðuneyti.

Síðan vil ég vísa út í hafsauga þessum stóru orðum um niðurskurð á milli umræðna og að það sé verið að koma í bakið á einhverjum tilteknum hópum. Þvílík fjarstæða, hv. þingmaður. Við erum í fordæmalausum vexti. Við jukum útgjöld á síðastliðnu ári um 65 milljarða og við erum að auka þau aftur um 45 milljarða á milli ára. Við erum í fordæmalausum vexti. Við erum að setja alla þá fjármuni og aukningu í nákvæmlega þá málaflokka, þá innviðauppbyggingu, sem við vorum sammála um, ríkisstjórnarflokkarnir, og gerum það í takti við það sem við getum.

Það hefur komið í ljós að byggingu t.d. Landspítalans seinkaði. Skóflustungan átti að vera í vor, var í haust. Það þýðir að við munum ekki ná að verja nema um 5 milljörðum þar í staðinn fyrir rúma 7 á næsta ári í þá byggingu. Það hefur komið í ljós að vinnan við starfsgetumatið hefur dregist. Það liggur ekki fyrir nákvæmlega hvernig hlutirnir eru þar. Við erum engu að síður að setja 9 milljarða á tveimur árum til öryrkja, bæði vegna fjölgunar en líka til hækkunar á einstökum liðum. Og við munum (Forseti hringir.) hafa 3 milljarða úr að spila til viðbótar á næsta ári inn í þann málaflokk.(Forseti hringir.) Svona gæti ég farið í gegnum alla málaflokkana, (Forseti hringir.) hef bara ekki tíma í þessum tveim mínútum.

(Forseti (SJS): Það er rétt.)