staða bænda.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hann hristi ermina en fékk ekki út úr henni, þannig að það er þá ekkert mikið uppi í erminni.
Menn eru mjög uggandi vegna þess að þau tíðindi bárust í haust þegar ekki var ráðið í stöðu skrifstofustjóra landbúnaðar í ráðuneytinu heldur á að sameina skrifstofuna við alþjóðaskrifstofu atvinnuvegaráðuneytisins, hvort eitthvað væri í vændum sem ekki væri til vegs og virðingar fyrir bændur og hvernig á því stæði að ráðherrann færi í þessa vegferð. Ég hef raunar spurt um þetta og beðið um að fá ráðherrann á fund atvinnuveganefndar en hann hefur ekki brugðist við því og ekki ráðuneytið heldur. Það væri því ágætt ef ráðherrann útskýrði það fyrir okkur hvers vegna hann fór í þessa vegferð.