149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

staða bænda.

[13:56]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Fjárlögin standa og einstakir fagráðherrar hafa ekkert umboðsvald í því. Fjárlagagerðin er hjá þinginu sjálfu. Fjárlögin eru í meðferð fjárlaganefndar. 2. umræða stendur yfir. Hv. þingmanni sem og öðrum þingmönnum er alveg sjálfsagt að koma fram með tillögur til breytinga á fjárlögunum. Ég treysti því þá að svo verði gert.

Ég minni hins vegar hv. þingmann á að sá samningur sem unnið er eftir við bændur var gerður undir forsæti eins tiltekins flokksformanns, sem er því miður ekki staddur í salnum en hann leiðir Miðflokkinn núna. Samningurinn var gerður með blessun hans og hann kveður á um 172 millj. kr. lækkun til bænda á milli ára.

Varðandi skrifstofustjórastarfið og einstakar ráðningar inni í ráðuneytinu hefur venjan verið sú að þingið hefur ekki kallað eftir beinum frekari verkum varðandi störf ráðuneytanna. Ég hef lýst því yfir við atvinnuveganefnd að velkomið sé að fara yfir þau mál með henni inni í ráðuneytinu. Ég hef fundað (Forseti hringir.) með stjórn Bændasamtaka Íslands og gert þeim grein fyrir því hvernig þetta er liður í því að styrkja stöðu landbúnaðarmála innan ráðuneytis míns. Það er fyrst og fremst sú ætlan (Forseti hringir.) með þessum tilfæringum, þó svo að allt annað hafi verið gefið í skyn í opinberri umræðu.