aðgengi fatlaðra að opinberum byggingum.
Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra svarið, en hann er samgönguráðherra. Honum ber að sjá til þess að samgöngur séu í lagi. Honum ber að sjá til þess og að t.d. rútubifreiðar séu með aðgengi fyrir fatlaða, sem þær eiga að vera með samkvæmt nýjustu reglum. En það virðist ekki vera svo, heldur virðist það vera sett á fatlaða einstaklinga að kæra svoleiðis framkvæmd ef hún er ekki í lagi.
Ég spyr: Er í lagi að velta hlutunum, lögum og reglum, yfir á fatlað fólk, hlutum sem eiga að vera sjálfsögð mannréttindi þess? Er ekki bara sjálfsagt að sjá til þess að allir hafi sama aðgang að byggingu, samgöngum og hverju sem er? Því að það er alveg stórfurðulegt að alltaf virðist halla á fatlaða einstaklinga og lög og reglur virðast alltaf vera þeim í óhag. Lög og reglur eru sett en virðast ekki gilda.
Hvers vegna í ósköpunum er ekki séð til þess að farið sé eftir þeim?