fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við fengum hugmyndir að lausnum í nokkrum umsögnum. Í einni mjög vandaðri kom fram hugmynd að lausn sem er PPP, sem er hluti af því sem hv. þingmaður kom inn á. Okkur Framsóknarmönnum hugnaðist mjög vel orðið sem var í þeirri umsögn, að mig minnir frá Viðskiptaráði, sem er samvinnuleið. Það orð var að finna þar og hefur síðan verið tekið upp í umræðunni um samgönguáætlun.
Við verðum auðvitað að leita lausna, eins og hv. þingmaður kom inn á. Ég held að það sem verði vandasamast í því að lenda slíkum verkefnum sé einmitt jafnræði og sanngirni í gjaldtöku. En ef við ætlum að sinna öllum verkefnum í samgöngum held ég að blasi við að við verðum að fara svona leiðir.
Ég ætlaði ekki að skilja neina sérstaka spurningu eftir fyrir hv. þingmann heldur hrósa honum fyrir hversu ötull hann hefur verið í umræðunni. Það er mjög gagnlegt fyrir hv. fjárlaganefnd og umræðuna hér að huga vel að formi og framsetningu fjárlaga. Við þurfum að bæta úr, hafa þetta skýrara, fá fram sem gagnlegastar upplýsingar. Hv. þingmaður hefur komið inn á fjölmarga þætti, útgjaldabrú og kostnaðarmetin markmið o.fl., og ég vil þakka fyrir það.