149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[20:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Við erum hér í lok 2. umr. fjárlaga sem hefur staðið yfir frá fimmtudegi og tekið þrjá daga. Ég verð að segja að umræðan hefur verið gagnleg. Hún hefur verið góð og hv. þingmenn hafa nýtt tímann vel til að bæði gagnrýna og tala fyrir tillögum sinna flokka.

Ég vil nefna síðustu ræður hv. þm. Pawels Bartoszeks. Hann kom inn á mjög athyglisvert mál í fjárlögunum og varpaði ljósi á stöðu barna með annað móðurmál en íslensku og bað mig um að koma því til skila til hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra þannig að til að stimpla það vel hér inn ætla ég að segja það í ræðustól, annars vegar að efla háskólamenntun fyrir þennan hóp og hins vegar að gera gangskör að útgáfu námsefnis.

Hv. þm. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir var með ansi skemmtilegan byggðavinkil á fjárlagafrumvarpið í sinni ræðu. Fyrr í dag var hv. þm. Oddný Harðardóttir með mjög yfirgripsmikla ræðu og fór í sínu máli mjög vel yfir stöðu barna. Er það við hæfi á alþjóðlegum barnadegi.

Ég ætla aðeins að draga saman það sem stendur eftir efnislega, hæstv. forseti, að stóra myndin í fjárlagafrumvarpinu hefur ekki breyst, meginniðurstaðan, þ.e. að þær breytingar sem við ræðum eru allar innan við 1% af heildarumfangi málefnasviða, ef við getum sagt sem svo. Þegar kemur að efnahagsforsendum frumvarpsins vorum við þrátt fyrir allt að upplifa þá breytingu á milli hagspáa Hagstofunnar frá júní til nóvember fyrir 2. umr. frumvarpsins að það dró úr, það er magnminnkun vergrar landsframleiðslu. Það er nýtt miðað við undangengin misseri að upplifa 0,2 prósentustig. Það er ekki mikið, það er spáð 2,5% hagvexti í stað 2,7% sem hefur sannarlega ekki mikil áhrif. Þá er neysluverðsvísitala júníspár 2,9%, en er í nóvemberspánni 3,6%, m.a. vegna lægra raungengis. Það eru helst áhrif þeirrar verðbólguspár sem valda endurmati á tekjum og gjöldum.

Það er rétt að ítreka að við erum ekki að horfast í augu við verulega breyttar efnahagsforsendur. Við höfum hér áfram hagvöxt., það er mikilvægt að halda því til haga, og það er jafnframt mikilvægt að fram komi að hagvöxtur framan af á þessu ári var mun kröftugri en spá Hagstofunnar gerði ráð fyrir. Júníspáin var 2,9% en nóvemberspáin 3,8%, þ.e. 2018-spáin. Neysluverðsvísitalan er óbreytt þannig að við erum að koma úr kröftugri hagvexti en við gerðum ráð fyrir. Ef heldur sem horfir eru líkur á því að okkur takist, sem er auðvitað stefnt að, að ná mjúkri lendingu í efnahagsmálum. Það er þess vegna að því leytinu jákvætt að við erum að bæta útgjöldin á þessum tímapunkti.

Mér finnst það helst vera sú gagnrýni sem er mikilvægt að taka tillit til á hinn bóginn þegar við skoðum útgjaldaþróunina og metum hana til næstu ára. Útgjöld ríkissjóðs hafa aukist mjög mikið á síðustu árum og ekki sjálfgefið að við verðum í færum til að viðhalda viðlíka aukningu til framtíðar, m.a. vegna þess að þegar hagvöxtur rénar dregur úr vexti tekjustofna og við verðum því á næstu árum að efla mjög það sem við köllum endurmat útgjalda og forgangsröðun og skoða tekjuöflunarkerfin í samhengi.

Stóra myndin, hæstv. forseti, heldur í þessu frumvarpi. Þær breytingar sem við höfum rætt hér með ágætum breyta í raun ekki heildarmyndinni sem lagt var upp með, að styrkja innviði samfélagsins, halda áfram á leið uppbyggingar okkar stærstu samfélagskerfa, heilbrigðismála, velferðarmála, menntamála, samgöngumála og loftslagsmála. Þetta hefur allt verið mjög ítarlega rætt í þessari umræðu.

Framlögin til þessara málaflokka eru aukin verulega. Það má nefna vinnumarkaðsmál eins og hækkun atvinnuleysisbóta og hækkun hámarksfjárhæðar í fæðingarorlofi. Við sjáum núna í fyrsta sinn að stefnumið ríkisfjármálastefnunnar eru greypt í stein. Við erum að upplifa hvað skilyrði laga um opinber fjármál þýða í raun og veru. Það miðast allt við að halda í þessi markmið. Ákveðinn agi er fólginn í því, þ.e. sá 1% afgangur af vergri landsframleiðslu sem stefnt var að. Það er haldið áfram að greiða niður skuldir og við förum í 30% viðmið á næsta ári. Staða ríkissjóðs er að þessu leytinu eftir samfellt hagvaxtarskeið traustari nú en um árabil og ég vil meina að það sé eftir skynsamlega stefnu undanfarinna ára. Þá er ég að tala um að greiða niður skuldir. Svigrúm hefur skapast fyrir innviðauppbyggingu sem er auðvitað það sem við erum að horfa á í þessu frumvarpi.

Ég ætlaði fyrst og fremst, virðulegi forseti, að þakka öllum hv. þingmönnum sem tóku þátt í umræðunni mjög uppbyggilegar ræður, nauðsynlega gagnrýni og samtal sem ég tel að gagnist okkur vel, bæði í hv. fjárlaganefnd og þinginu og til framtíðar í því mikilvæga máli sem fjárlög á hverjum tíma vissulega eru.