149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

staða, þróun og framtíð íslenska lífeyrissjóðakerfisins.

[11:20]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Frú forseti. Mörg lönd eru nú að fást við það vandamál að vinnandi höndum fyrir hvern lífeyrisþega hefur fækkað og fyrirsjáanlegt að þeim muni halda áfram að fækka á komandi árum. Á Íslandi mun meðalaldur fara hækkandi á næstu áratugum og þótt meðalaldur þjóðarinnar sé enn nokkuð lágur hefur verið áætlað að árið 2050 verði um helmingi færri vinnandi hendur fyrir hvern ellilífeyrisþega. Ef við værum með algjört gegnumstreymiskerfi hérlendis myndi það þýða annaðhvort auknar álögur á vinnandi fólk, eftir því sem þjóðin eldist, eða að lífeyrir lækkar einfaldlegameð tímanum.

Uppbygging lífeyrissjóðakerfisins hérlendis er sérstök hvað margt varðar. Stefna kerfisins fyrirbyggir að ýmsu leyti þetta tiltekna vandamál gegnumstreymiskerfis og er til þess fallin að tryggja öryggi unga fólksins í dag, sem mun verða með færri vinnandi hendur á bak við sig á efri árum. Hugmyndir um aukið vægi gegnumstreymis í lífeyrissjóðakerfinu verða að taka mið af þessu. Við skulum forðast að velta vandamálunum yfir á komandi kynslóðir.

Það er mikilvægt að halda því til haga að lífeyrissjóðir eru eign launafólks og geyma og ávaxta lífsnauðsynlegan lífeyri þeirra. Því verður að stíga varlega til jarðar og ræða málin vandlega þegar fjárfestingar lífeyrissjóða eru til umræðu og auk þess virða sjálfstæði þeirra.

Á hinn bóginn er samfélagsleg ábyrgð lífeyrissjóða líkt og annarra fjárfesta rík og því verður að fagna öllum hugmyndum um möguleika í samfélagslegum fjárfestingum sem lífeyrissjóðir gætu séð sem ákjósanlegan kost fyrir sig og skiluðu þeim eðlilegri ávöxtun en á sama tíma miklum ágóða til samfélagsins, t.d. í bættum innviðum, sem mun leiða til bættra lífsgæða og aukinnar hagsældar.