149. löggjafarþing — 36. fundur,  22. nóv. 2018.

staða, þróun og framtíð íslenska lífeyrissjóðakerfisins.

[11:24]
Horfa

Ásgerður K. Gylfadóttir (F):

Frú forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Guðjóni S. Brjánssyni, fyrir frumkvæðið að þessari umræðu hér í dag. Einn af punktunum sem velt er upp í umræðunni er hvort ástæða sé til þess að hvetja lífeyrissjóði til þátttöku í samfélagsverkefnum, t.d. í þágu aldraðra eða annarri innviðauppbyggingu. Þetta er mjög góður punktur hjá hv. þingmanni því að fjárfestingartækifærin eru svo sannarlega til staðar á sviði innviðauppbyggingar.

Þörfin er ljós fyrir aukna og hraðari uppbyggingu hjúkrunarrýma á landinu öllu og mætti færa rök fyrir því að fjárfesting lífeyrissjóða í uppbyggingu á húsnæði í því skyni væri skynsamleg. Það myndi veita góða innspýtingu í þau verkefni og hraða framkvæmdum í þágu lífeyrisþeganna sem bíða eftir hjúkrunarrými.

Einnig sé ég fyrir mér að lífeyrissjóðirnir geti komi sterkir inn úti um allt land þar sem skortur er á íbúðarhúsnæði með því að fjárfesta í húsnæði fyrir óhagnaðardrifin leigufélög, til að mynda íbúðum fyrir eldri borgara sem vilja losa um eignir sínar og minnka við sig, eða eiga íbúðafélög í almenna íbúðakerfinu. Með fjárfestingu í húsnæði fyrir eldri borgara geta einstaklingar losað um fjárhagslega eign sína í húsnæði og aukið ráðstöfunartekjur en búið áfram í öruggu húsnæði.

Sú mikla eftirspurn sem er í dag eftir húsnæði gerir að verkum að þörfin fyrir lífeyrissjóðina í samfélagslegri þátttöku er vaxandi. Það að fjárfest sé í innviðum til stuðnings eigendum lífeyrissjóðanna, lífeyrisþegunum sjálfum, hefur einnig jákvæð áhrif á ímynd þeirra sem fjárfesta.

Einnig má sjá tækifæri fyrir lífeyrissjóðina í fjárfestingu í samgöngukerfinu. Þar eru svo sannarlega stór og krefjandi verkefni fram undan sem við ættum að geta sameinast um.