staða, þróun og framtíð íslenska lífeyrissjóðakerfisins.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni Brjánssyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga efni. Stefna Flokks fólksins hvað varðar lífeyrissjóðina hefur verið skýr. Hún hefur einmitt verið í þá átt að lífeyrissjóðir séu jú eign allra landsmanna en ekki einhverja gróðapunga til að gambla með, eins og maður hefur eiginlega fengið á tilfinninguna síðustu árin.
Eignasafn upp á 4.300 milljarða kr. — hvers vegna skyldum við ekki fá staðgreiðslu af inngreiðslu lífeyrisgreiðslna sem af okkur eru teknar hverju sinni í stað þess að fá þetta greitt út þegar við tökum lífeyrisréttinn okkar, hvenær sem það er, hvort sem það er eftir slys og við þurfum á þeim að halda eða þegar við erum komin á lífeyristökualdur? Þarna gæti ríkissjóður hreint út sagt fengið hátt í 70 milljarða kr. samkvæmt þeim tölum sem ég hef fengið núna. Maður er svo heppinn að geta komið með fyrirspurnir sem þingmaður á upplýsingasvið Alþingis eða beint þeim til ráðuneyta og ráðherra, og við fáum svör. Svörin eru skýr: Þetta yrðu um 70 milljarðar á ári. Hvað gætum við gert fyrir 70 milljarða á ári inn í ríkissjóð? Hvers vegna skyldum við halda þeim eftir inni í lífeyrissjóðunum? Hvers vegna eiga þeir að gambla með okkar fjármuni? Jú, þeim gengur oft vel að fjárfesta en það gengur ekki alltaf vel. Það gengur ekki alltaf vel hjá þeim frekar en öðrum. Og hvers vegna fáum við eigendurnir ekki að njóta vafans? Ég get engan veginn náð utan um það. Ég get ekki skilið það.
Það er hér á þessu háa Alþingi sem við breytum lögunum um lífeyrissjóðina og það var gert, ég veit ekki hvort það var 100 sinnum eða 200 sinnum, það munar dálítið miklu, eftir hrun svo það er ýmislegt gert til þess að aðlaga þá. Og nú taka þeir inn um 21,6% af öllum greiðslum einstaklinga. (Forseti hringir.) Þetta er bara peningafoss inn í lífeyrissjóðina og við viljum fá að taka þátt í þessum fossi.